Fyrirlesturinn hentar öllum sem starfa við eða hafa áhuga á prentiðnaði, skiltagerð, merkingum, textílprentun og umbúðagerð og vilja fylgjast með nýjustu straumum og nýta þá í sinni starfsemi.
Markmið fyrirlestursins er að kynna nýjustu þróun og tæknilausnir í skiltagerð, prentun á bylgjupappa og filmuásetningum. Þátttakendur fá innsýn í ný efni, aðferðir og möguleika sem eru að móta auglýsingaprent í dag.
Efnið byggir á samantekt Sæmundar Freys Árnasonar á nýjungum sem kynntar voru á alþjóðlegri FESPA ráðstefnunni í Barcelona, þar sem fremstu sérfræðingar heims í prent-, merkinga- og sjónrænum samskiptum kynntu nýjustu þróun.
Prentsmiður er með áralanga reynslu af framleiðsluferli prentverka.