Brunaþéttingar

Verð fyrir félagsmenn
7.000 kr.
Verð
35.000 kr.
Námskeið er fyrir alla sem koma að byggingarframkvæmdum og þurfa að þétta milli brunahólfa. Það er haldið skv. ákvæðum reglugerðar 1067/2011 um þjónustuaðila brunavarna.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir alla sem koma að byggingarframkvæmdum og þurfa að þétta milli brunahólfa.

Markmið:

Markmið þess er að þátttakendur kunni skil á reglum um brunaþéttingar og efnum sem notuð eru til þeirra.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Brunahólfun bygginga.
  • Kröfur til brunaþéttinga.
  • Brunaþol efna sem notuð eru til þéttinga milli brunahólfa.
  • Frágang brunaþéttinga.
  • Reglur um starfsleyfi

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja reglur um brunaþéttingar í byggingum.
  • Þekkja brunaþol byggingarefna og þéttiefna.
  • Kunna að þétta milli brunahólfa.

Annað:

Námskeiðið er haldið skv. ákvæðum reglugerðar 1067/2011 um þjónustuaðila brunavarna. Það er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Í lok námskeiðs er stutt skriflegt próf. Þeir sem að lágmarki ná einkunninni 7 á prófinu geta sótt um starfsleyfi til HMS til að annast brunaþéttingar.

Staðsetning
Sauðárkrókur - Farskólinn, Faxatorgi, 550 Sauðárkróki

30. apríl 2026 kl: 13:00 - 17:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tengiliður
Sólveig Brynja Indriðadóttir - [email protected]
Guðmundur Gunnarsson
Kennari
Guðmundur Gunnarsson
byggingaverkfræðingur

Guðmundur er MSc í byggingarverkfræði frá Aalborg Universitetcenter og MPA í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann er löggiltur hönnuður aðaluppdrátta, lagna og burðarþols. Guðmundur hefur áratuga reynslu af að skipuleggja og kenna eldvarnaeftirlitsmönnum að skoða hús eftir forskrifuðum reglum. Hann er stundakennari við Háskólann í Reykjavík og kennir við endurmenntun fag- og iðnaðarmanna hjá Iðunni, Rafiðnaðarskólanum og á námskeiðum í samstarfi við Vinnueftirlitið.