Námskeiðið er fyrir alla sem ætla að setja upp röraverkpalla við byggingar og mannvirki. Það námskeið er haldið í samræmi við ákvæði 16. gr. reglugerðar um röraverkpalla nr. 729/2018.
Tilgangur námskeiðsins er að stuðla að öryggi fólks í tengslum við notkun röraverkpalla, þar með talið starfsmanna sem starfa á slíkum pöllum eða í námunda við slíka palla, til að koma í veg fyrir að slys eigi sér stað.
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Í lok námskeiðs taka nemendur krossapróf, lágmarkeinkunn til að standast prófið er að svara 80% spurninga rétt.
Gísli hefur sótt fjöld námskeiða og hlotið réttindi sem leiðbeinandi um notkun og meðferð öryggisbúnaðar. Hann starfar við sölu og ráðgjöf hjá Dynjanda.