Lagning þakpappa - undirbúningur, áhættumat og forvarnir

Verð fyrir félagsmenn
13.000 kr.
Verð
65.000 kr.
Lagning þakpappa - undirbúningur, áhættumat og forvarnir
Námskeið fyrir byggingamenn sem leggja asfaltpappa á þök og aðra fleti utanhúss og vilja gera það með réttum og öruggum hætti.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir byggingamenn sem leggja asfaltpappa á þök og aðra fleti utanhúss og vilja gera það með réttum og öruggum hætti.

Markmið:

Markmið námskeiðsisn er að auka öryggi og þekkingu starfsfólks við lagningu þakpappa. Greina áhættuþætti við mismunandi þakgerðir og aðstæður. Tilgangurinn er að innleiða öruggt verklag, góðan undirbúning og draga þannig úr tjóna- og slysahættu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Lög og reglugerðir varðandi öryggi og eldvarnir við lagningu þakpappa.
  • Tæki og búnað sem notaður er við vinnu við lagningu þakpappa.
  • Mismunandi gerðir þaka og þakgerða og hættur sem fylgja vinnu við þær.
  • Asfaltpappa, mismunandi gerðir og eiginleika.
  • Val á réttum efnum og aðferðum miðað við aðstæður.
  • Undirbúning framkvæmda, áhættumat og öryggisráðstafanir.
  • Framkvæmdir og eftirfylgni við lagningu þakpappa.
  • Hættur við logavinnu og aðferðir til að forðast þær.
  • Viðbrögð við eldi og notkun slökkvitækja.
  • Fallvarnir og öryggisráðstafanir við vinnu í hæð.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja viðeigandi lög, reglugerðir og staðla sem gilda um eldvarnir og öryggi á vinnustöðum og í mannvirkjagerð.
  • Þekkja helstu gerðir tækja og búnaðar, gas-, brennara- og slökkvibúnað.
  • Þekkja helstu þakgerðir og gera þér grein fyrir hættum sem kunna að vera til staðar.
  • Þekkja hvernig og hvaða gagna þurfi að afla og greina og eftir atvikum hafa til taks á verkstað hverju sinni (t.d. teikningar).
  • Geta greint helstu áhættuþætti við lagningu þakpappa, gert viðeigandi úrbætur til að tryggja öryggi og undirbúa og framkvæma vinnu með opinn eld í samræmi við öryggiskröfur.
  • Kunna að fylgja lagningu þakpappa eftir með viðeigandi öryggisráðstöfunum til að draga úr hættu á eldi og slysum.
  • Geta miðlað þekkingu um eldvarnir og öryggisráðstafanir til samstarfsfólks og tekið virkan þátt í öryggismálum á vinnustað.
  • Geta brugðist rétt komi upp eldur í kjölfar lagningar þakpappa, þar með talið rýming, fyrstu aðgerðir slökkvistarfa og tilkynningarskylda, auk þess að geta valið og notað viðeigandi slökkvibúnað út frá efnivið og aðstæðum.
  • Nota viðeigandi fallvarnir og fallvarnabúnað við vinnu á þökum

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

28. október 2026 kl: 09:00 - 16:00
29. október 2026 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennarar
Eyþór Kári Eðvaldsson
Eyþór Kári Eðvaldsson
Rafmagnstæknifræðingur og MPM

Eyþór er Rafmagnstæknifræðingur B.Sc. frá Háskólanum í Reykjavík og MPM í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er viðurkenndur vinnuverndarráðgjafi frá Vinnueftirlitinu og leiðbeinandi í skyndihjálp frá RKÍ. Hjá ÖRUGG kemur hann að vinnu við Umferðaröryggisáætlanir, Merkingaráætlanir, Áhættugreiningar og áhættumöt m.a. vegna náttúruvár. Hann starfaði áður sem öryggisstjóri RARIK en Þar hélt hann meðal annars utan um og kenndi á ýmsum öryggisnámskeiðum fyrir starfsmenn RARIK og verktaka. Hann hafðu umsjón með ábendingakerfi vegna öryggisatvika, hélt utan um og gerði atvika og slysarannsóknir ásamt því að sjá um öryggisnefnd fyrirtækisins.

Arkadiusz Ostap
Arkadiusz Ostap
Brunaverkfræðingur MSc.

Arkadiusz Ostap er með meistaragráðu í brunaverkfræði (Brunaverkfræði MSc). Hann hóf störf sem slökkviliðsmaður árið 2012, í heimalandi sínu Póllandi á meðan hann var enn í námi, og öðlaðist reynslu í björgunar- og slökkvistarfi sem og hönnun brunaviðvörunar- og úðakerfa. Eftir útskrift varð hann yfirmaður björgunar- og slökkvistarfa og sinnti síðar öryggismálum við byggingu höfuðstöðva slökkviliðs ríkisins. Hann hefur viðurkenningu frá Vinnueftirlitinu sem sérfræðingur við gerð öryggis- og heilbrigðisáætlana fyrir efni og efnahættu og umhverfisþætti. Hann flutti til Íslands í ágúst 2022 og hefur frá vorinu 2023 starfað hjá Örugg sem brunavarnarhönnuður og öryggisfulltrúi.

Atli Rútur Þorsteinsson
Atli Rútur Þorsteinsson
Bygginga- og brunaverkfræðingur M.Sc.

Atli Rútur er bygginga- og brunaverkfræðingur með B.Sc. gráðu í Umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í Burðarþols- og brunaverkfræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi. Hann er löggiltur mannvirkjahönnuður og starfar við brunahönnun bygginga, úttektir brunavarna, brunaáhættumöt, rannsóknir á brunatjóni o.fl. Atli sat fyrir hönd Brunatæknifélags Íslands í vinnuhópi Húsnæðis og mannvirkjastofnunar sem sá um gerð RB blaðs um lagningu þakpappa.