Skyndihjálp
Verð fyrir félagsmenn
3.300 kr.
Verð
13.200 kr.
Námskeið um skyndihjálp fyrir allt starfsfólk á byggingarvinnustöðum.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir allt starfsfólk á byggingarvinnustöðum.
Markmið:
Markmið þess er að kenna þátttakendum viðbrögð við slysum.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Undirstöðuatriði skyndihjálpar og endurlífgunar.
- Hvernig beita megi á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
- Sálræna fyrstu hjálp
- Endurlífgun og notkun hjartastuðtækis
- Aðskotahluti í hálsi
- Bráð veikindi.
- Slys og áverka.
- Aðstoð í bráðatilfellum og fá þátttakendur þjálfun henni.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta sýnt fram á þekkingu og hæfni við að tryggja öryggi á vettvangi, meta aðstæður og framkvæma skoðun og mat.
- Geta ákveðið hvenær eigi að virkja viðbragðskeðjuna, með því að hringja í 112, til að fá frekari aðstoð.
- Geta borið kennsl á og veitt sálræna fyrstu hjálp vegna áfalla.
- Geta sýnt fram á þekkingu, leikni og hæfni í endurlífgun með hjartahnoði, öndunarblástrum og notkun á hjartastuðtæki.
- Geta sýnt fram á leikni og hæfni í teymisvinnu í endurlífgun.
- Geta borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna slysa og áverka.
- Geta borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna bráðra veikinda.
- Geta borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna aðskotahlutar í hálsi.
Annað:
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rauða krossinn og fá þátttakendur skírteini frá honum að loknu námskeiði.
Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
22. október 2026 kl: 13:00 - 17:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]