Verkleg kennsla: Umbrot og framleiðsla í InDesign

Verð fyrir félagsmenn
9.000 kr.
Verð
55.000 kr.
Verkleg kennsla: Umbrot og framleiðsla í InDesign
Hagnýtt námskeið þar sem lögð er áhersla á allt framleiðsluferlið við umbrot og útgáfu fréttabréfa, tímarita og dagblaða í Adobe InDesign. Þátttakendur brjóta um átta síðna tímarit.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja efla færni sína í InDesign og vilja vinna markvisst og faglega að framleiðslu fréttabréfa, tímarita og dagblaða.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum góða þekkingu á umbroti og framleiðsluferli fréttabréfa, dagblaða og tímarita í Adobe InDesign. Áhersla er lögð á góða uppsetningu, skilvirk vinnubrögð og faglegan frágang efnis fyrir prent og stafræna miðla. Þátttakendur læra að nýta helstu verkfæri forritsins á markvissan hátt og tileinka sér verklag sem notað er í faglegu umbroti þar sem miklu máli skiptir að huga að kostnaði og nýta tímann vel. Allir þátttakendur brjóta um 8 síðna tímarit.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

Á námskeiðinu verður farið í helstu þætti framleiðslu og umbrots í Indesign.

  • Framleiðsluferlið, tíma- og verkáætlanir
  • Uppsetningarreglur og almennar verkreglur
  • Textavinnslu og leturmeðferð
  • Notkun stíla og skipulag efnis
  • Mynda- og síðuuppsetningu
  • Litastillingar og undirbúning fyrir prent
  • Prentstillingar og útflutning (PDF o.fl.)
  • Góð ráð í framleiðsluferlinu sem flýta fyrir vinnu og auka gæði.
  • Samskipti við verkkaupa

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Hafa skilning á öllu framleiðsluferlinu frá hugmynd að fullunnu verki
  • Geta sett upp og brotið um einfalt til meðalflókið efni í Adobe InDesign
  • Geta unnið með texta, myndir og stíla á skilvirkan og faglegan hátt
  • Geta undirbúið efni fyrir prent og stafræna birtingu
  • Þekkja helstu vinnubrögð sem stuðla að betri gæðum og tímasparnaði
  • Geta átt fagleg samskipti við verkkaupa og unnið eftir verkáætlun

Aðrar upplýsingar:

Kennari námskeiðsins. Sæmundur Freyr Árnason, er þrautreyndur í umbroti dagblaða, tímarita og fréttabréfa og starfaði sem framleiðslustjóri Fréttablaðsins í fjölda ára.

16. september 2026 kl: 17:00 - 20:00
23. september 2026 kl: 17:00 - 20:00
30. september 2026 kl: 17:00 - 20:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Sæmundur Freyr Árnason
Kennari
Sæmundur Freyr Árnason
Sæmundur Freyr Árnason

Prentsmiður er með áralanga reynslu af framleiðsluferli prentverka.