Loftfrískunarkerfi - Meðhöndlun kælimiðla

Í samstarfi við TEXA UK
Verð fyrir félagsmenn
22.000 kr.
Verð
88.000 kr.
Loftfrískunarkerfi - Meðhöndlun kælimiðla
Ert þú með réttindi til að meðhöndla kælimiðla bifreiða

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir þá sem gætu þurft að sinna viðhaldi og viðgerðum á loftfrískunar og varmadælukerfum bifreiða. Námskeiðið veitir réttindi til að vinna við loftfrískunarkerfi (AC) farartækja samkvæmt reglugerð 1066/2019 sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 517/2014 um flúoraðar gróðurhúslofttegundir (Byggt á (EB) nr. 842/2006 og (EB) nr.307/2008).

Markmið:

Markmiðið er að þátttakendur geti með öruggum hætti tappað af og fyllt á loftfrískunar og varmadælukerfi bifreiða og viti afhverju ekki megi losa kælimiðilinn út í andrúmsloftið.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Gerð og virkni loftfrískunarbúnaðar
  • Reglugerðir í tengslum við kælimiðla
  • Meðferð og vörslu kælimiðla
  • Mengunarhættu
  • Viðeigandi greiningartæki til lekaprófunar
  • Grunn þætti bilanagreiningar
  • Öryggi og vinnu við kælikerfi bifreiða

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Hafa grunn skilning á virkni kælikerfa
  • Skilja afhverju ekki megi losa kælimiðil út í andrúmsloftið.
  • Þekkja þann öryggisbúnað sem þarf til að meðhöndla kælimiðla
  • Hafa grunn skilning á lekaprófun og bilanagreiningu
  • Getað tengt A/C vél við bíl og þjónustað kælikerfið

Aðrar upplýsingar:

Námskeið endar með bóklegu prófi sem fram fer fram í gegnum tölvu og verklegu mati.

Námskeiðið er í samvinnu við  TEXA  UK og er vottað af IMI í Bretlandi.

Námskeiðið er kennt á ensku.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

1. október 2026 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Standast bóklegt próf og verklegt mat
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Lee Atkinson
Kennari
Lee Atkinson
Technical Trainer at TEXA UK Limited

Lee starfar sem Technical Trainer hjá Texa UK og hefur áratuga reynslu af bílgreininni