Gervigreind fyrir hönnuði

Verð fyrir félagsmenn
3.500 kr.
Verð
12.500 kr.
Á þessu námskeiði skoðum við heillandi heim gervigreindar og finnum út úr því hvernig hönnuðir geta nýtt sér öflug tól og nýjar aðferðir í vinnu sinni.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið hentar hönnuðum, umbrotsfólki og fólki í sölu- og markaðsstarfi.

Markmið:

Að byggja upp hagnýta þekkingu á þeim gervigreindartólum sem stendur hönnuðum til boða.

Lýsing:

Langar þig að dýfa tánni ofan í hafsjó gervigreindar en vilt vita hvar þú átt að byrja að leita? Á þessu námskeiði skoðum við heillandi heim gervigreindar og finnum út úr því hvernig hönnuðir geta nýtt sér þau öflugu tól og aðferðir sem standa okkur til boða.

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja kynna sér fjölbreytt gervigreindartól eins og til dæmis ChatGPT til að skapa alls kyns myndefni.

Aðrar upplýsingar:

Þátttakendur í fjarnámi þurfa að hafa aðgang að Adobe hugbúnaði á tölvum sínum.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

8. maí 2025 kl: 10:00 - 12:00
9. maí 2025 kl: 10:00 - 12:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Valdís Axfjörð - [email protected]
Steinar Júlíusson
Kennari
Steinar Júlíusson
Grafískur hönnuður með sérþekkingu á hreyfihönnun