Fyrir iðnaðarmenn, tæknimenn og aðra sem vilja öðlast grunnfærni í forritun og notkun tölvustýrðra fræsivéla og rennibekkja, með áherslu á CAM og CNC tækni.
Að þátttakendur öðlist hagnýta færni í notkun Inventor CAM forritsins og framkvæmd verkefna í Haas CNC fræsivél og Haas CNC rennibekk – frá teikningu til framkvæmdar.
Á þessu námskeiði læra þátttakendur að forrita og vinna með CNC-stýrðar spóntökuvélar. Farið er yfir notkun Inventor CAM, forritun með ISO- og G-kóða, og verklega framkvæmd verkefna á Haas Desktop Mill og Haas Desktop Lathe. Einnig er fjallað um öryggisstaðla, verkfæraval og hvernig forrit eru færð yfir í vél. Þátttakendur vinna eigin verkefni og fá innsýn í tengingu CAD og CAM forrita. Námskeiðið veitir færni sem nýtist einnig við notkun á öðrum tölvustýrðum iðnaðarvélum, s.s. yfirfræsurum, 3D prenturum og skurðarvélum.
Námskeiðið fer fram í húsnæði Iðunnar, Vatnagörðum 20. Þátttakendur fá aðgang að öllum búnaði og tækjum. Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu af notkun CNC -stýrðra tækja en grunnþekking á rennismíði, fræsivinnu og teiknivinnu er kostur.
Hagnýtar upplýsingar:
Stutt áhættugreining:
CNC-vinna krefst vandaðra vinnubragða. Áhætta felst í snúningshlutum, skurðarbúnaði og hugsanlegri röngum stillingum. Með góðri öryggisfræðslu, réttum búnaði og leiðsögn fagaðila má halda hættum í lágmarki. Öryggisatriði og umgengni við tæki eru mikilvægur hluti námskeiðsins.
Hefur um árabil starfað við rennismíði, aðallega á CNC tækjum. Kennir nú rennismíði í Tækniskóla Íslands