Rafmagn I - Norðurál

Verð fyrir félagsmenn
25.000 kr.
Verð
100.000 kr.
Þarftu að ryfja upp hvernig á að bera sig að við mælingar í rafbúnaði ökutækja?

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem lítið hafa unnið í rafmagni eða vilja ná betri tökum  á grunn þáttum mælinga í rafkerfum faratækja

Markmið:

Að loknu þessu námskeiði á þátttakandi að vera öruggari og hæfari þegar kemur að því að finna, mæla og greina vandamál sem sem algengt er að komi upp í rafkerfum ýmiskonar farartækjum.

Lýsing:

Á námskeiðinu verður farið yfir almenna grunnþætti í rafmagnsfræði í farartækjum, einnig rifjað upp hvaða hlutverki raðtengingarog hliðtengingar gegna og gerð verkefni og útreikningar samhliða því. Ohm lögmál og Lögmál Kirchhoffs um straum rifjuð upp. Grunnþættir AC og DC skilgreindir.

Farið yfir grunnþætti í rafteikningum farartækja, sem og lágspennu og háspennu farartækja.

Einnig verður farið yfir mælingar á samskiptabúnaði, virkni og mælingar á slíkum búnaði í farartækjum.

Áhrif segulsviðs á rafbúnað.

Nemandinn þekki helstu mæli- og prófunartæki sem notuð eru við rafbúnaðarviðgerðir.

Miðast er við að verkefnavinna verði stór þáttur af þessari yfirferð.

Aðrar Upplýsingar:

Þetta námskeið er sérstaklega sérsniðið fyrir starfsmenn verkstæðis Norðuráls

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

14. maí 2025 kl: 08:00 - 15:30
15. maí 2025 kl: 08:00 - 15:30
Fyrirkomulag kennslu
Fyrirtækjanámskeið
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Valdís Axfjörð - [email protected]
Kennarar
Kristján M. Gunnarsson
Bifvélavirkjameistari
Sveinbjörn Björnsson
Sveinbjörn Björnsson
Bifvélavirkjameistari