Alla bílstjórar með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 sem vilja viðhalda atvinnuréttindum sínum. Þetta námskeið flokkast undir hlutann öryggi.Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum. Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum.
Bílstjórinn þekki atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða, farþegaflutningum, ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega og almennt að þjónustuhlutverki bílstjóra, náttúruvernd, ferðamennsku, mjúkum akstri o.fl. Hann þekki ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða. Að því er stefnt að bílstjórinn: Aki mjúklega og af öryggi með vellíðan farþega í fyrirrúmi, kunni leiðir til að veita örugga og vandaða þjónustu og tileinki sér góða framkomu gagnvart farþegum og öðrum vegfarendum, þekki sérkenni ólíkra hópa farþega og kunni samskiptahætti sem stuðla að farsælli lausn ágreiningsmála, þekki ákvæði í lögum og reglum um farþegaflutninga í atvinnuskyni, búnað hópbifreiða, nauðsynleg skjöl og leyfi, náttúruvernd og skyldur bílstjóra.
Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka fimm endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. Mikil ábyrgð hvílir á bílstjórum stórra ökutækja en markmið námskeiðanna er að efla atvinnubílstjóra sem fagstétt og auka umferðaröryggi. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Samgöngustofu
Námskeiðið er kennt bæði í stofu og í streymi á netinu.