Alla bílstjórar með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 sem vilja viðhalda atvinnuréttindum sínum.Þetta námskeið flokkast undir hlutann öryggi.Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum. Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum.
Markmiðið er að bílstjórinn geti gengiðfrá og fest af öryggi mismunandi tegundir farms. Bílstjóri þekki reglur um, notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa.
Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka fimm endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. Mikil ábyrgð hvílir á bílstjórum stórra ökutækja en markmið námskeiðanna er að efla atvinnubílstjóra sem fagstétt og auka umferðaröryggi. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins.
Námskeiðið er kennt bæði í stofu og í streymi á netinu.