Vinnuvernd 101
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllu starfsfólki, óháð starfstitli, til að tryggja að allir hafi sameiginlegan grunn í öryggis- og vinnuverndarmálum.
Markmið:
Að veita þátttakendum almenna og aðgengilega innsýn í helstu lög, reglur og verkferla vinnuverndar – með áherslu á að stuðla að öruggara og heilbrigðara starfsumhverfi.
Lýsing:
Á þessu stutta en hnitmiðaða vefnámskeiði er farið yfir grundvallaratriði í starfsumhverfi og vinnuskipulagi með það að markmiði að efla öryggi og vellíðan á vinnustað. Fjallað er um helstu kröfur laga og reglugerða og hvernig þær birtast í daglegum verkferlum á vinnustöðum.
Efni námskeiðsins felur í sér:
- Vinnuverndarstarf á vinnustöðum
- Hlutverk og skipan öryggisnefnda, öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
- Gerð áhættumats og verklag þess
- Skráning og tilkynning vinnuslysa
- Helstu forvarnir gegn slysum
- Sálfélagslegt áhættumat og viðbragðsáætlanir gegn einelti og áreitni
- Líkamlegt álag, hávaði, loftræsting og hættuleg efni
Þátttakendur fá sent námsefni í tölvupósti (bæklingar og tenglar), horfa á sjö stutta fyrirlestra (samtals ca. 40 mínútur) og ljúka námskeiðinu með krossaprófi.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er alfarið vefnámskeið og er opið þátttakendum strax við skráningu. Þátttakendur geta lært á eigin hraða, hvar og hvenær sem þeim hentar. Námsgögn eru rafræn og aðgengileg í gegnum tölvupóst.
Hagnýtar upplýsingar:
- Lengd: ca. 1 klst.
- Kennari: Vinnuverndarnámskeið ehf
- Staðsetning: Vefnám
- Námsmat: Stutt krossapróf
Iðan er í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf. Skólinn var stofnaður í desember 2021 af Eggerti Björgvinssyni, Guðmundi Kjerúlf og Leifi Gústafssyni og býður upp á fjölda vinnuverndar- og vinnuvélanámskeiða. Félagsmenn Iðunnar njóta sérkjara hjá Vinnuverndarnámskeið ehf þegar skráning fer fram hjá Iðunni.