3D prentun í iðnaði

Verð fyrir félagsmenn
95.000 kr.
Verð
195.000 kr.
Frá hugmynd að prentuðum hlut – lærðu grunninn í 3D prentun og taktu prentarann með heim!

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast 3D prentun frá grunni – sérstaklega iðnaðarfólki og tæknivæddum hugmyndasmiðum sem vilja nýta möguleika þrívíddarprentunar í starfi eða eigin verkefnum.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist traustan grunn í notkun 3D prentara, hönnun eigin hluta, vali á efni og notkun viðeigandi hugbúnaðar – með það að markmiði að geta haldið áfram að nýta tæknina eftir námskeiðið.

Lýsing:

Á námskeiðinu er farið yfir allt ferlið í 3D prentun: frá hugmynd og hönnun í Fusion 360 til prentunar með Bambu Lab A1 Combo. Þátttakendur setja saman prentarann, kynnast Bambu Studio og OrcaSlicer, læra að undirbúa módel fyrir prentun og fá innsýn í 3D skönnun og eftirvinnslu. Hver þátttakandi fær prentarann með sér heim að loknu námskeiði. Fjallað verður um viðhald og umhirðu prentarans, notkun mismunandi efna og hvernig ná bestum gæðum í prentun má ná.

Aðrar upplýsingar:

  • Þátttakendur þurfa að koma með eigin fartölvu og góða tölvumús.
  • Prentarinn (Bambu Lab A1 Combo) er innifalinn í námskeiðsgjaldi og fylgir nemanda að námskeiði loknu.
  • Ekki er þörf á fyrri reynslu af 3D prentun.
  • Gjafabréf og afsláttarkjör gilda ekki, félagsaðilar Iðunnar fá niðurgreitt verð.

Hagnýtar upplýsingar:

  • Lengd: 12 klst.
  • Kennari: Jóhannes Páll Friðriksson
  • Staðsetning: Iðan fræðslusetur, Vatnagörðum 20. Í boði á landsbyggðinni ef næg þátttaka fæst.
  • Tímasetning:
    • kl. 15:00–21:00 í tvo daga
  • Verð: 195.000 kr.
  • Verð fyrir félagsaðila: 95.000 kr.

Stutt áhættugreining:

Námskeiðið inniheldur verklega vinnu með 3D prentara og rafbúnað. Áhættustig er lágt, en mikilvægt er að fara varlega í uppsetningu og umgengni við heita prentara og efnavörur. Rétt meðferð og verkleiðbeiningar draga úr áhættu og tryggja öryggi.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

16. júní 2025 kl: 15:00 - 21:00
18. júní 2025 kl: 15:00 - 21:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Valdís Axfjörð - [email protected]
Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.
Jóhannes Páll Friðriksson
Kennari
Jóhannes Páll Friðriksson
Sérfræðingur í 3D prentun

Jóhannes Páll Friðriksson, eigandi 3D verk