Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast 3D prentun frá grunni – sérstaklega iðnaðarfólki og tæknivæddum hugmyndasmiðum sem vilja nýta möguleika þrívíddarprentunar í starfi eða eigin verkefnum.
Að þátttakendur öðlist traustan grunn í notkun 3D prentara, hönnun eigin hluta, vali á efni og notkun viðeigandi hugbúnaðar – með það að markmiði að geta haldið áfram að nýta tæknina eftir námskeiðið.
Á námskeiðinu er farið yfir allt ferlið í 3D prentun: frá hugmynd og hönnun í Fusion 360 til prentunar með prentara sem þeir velja í samráði við 3D verk (greiða mismun beint til 3D verk) Þátttakendur setja saman prentarann, kynnast Bambu Studio og OrcaSlicer, læra að undirbúa módel fyrir prentun og fá innsýn í 3D skönnun og eftirvinnslu. Hver þátttakandi fær prentarann með sér heim að loknu námskeiði. Fjallað verður um viðhald og umhirðu prentarans, notkun mismunandi efna og hvernig ná bestum gæðum í prentun má ná.
Hagnýtar upplýsingar:
Stutt áhættugreining:
Námskeiðið inniheldur verklega vinnu með 3D prentara og rafbúnað. Áhættustig er lágt, en mikilvægt er að fara varlega í uppsetningu og umgengni við heita prentara og efnavörur. Rétt meðferð og verkleiðbeiningar draga úr áhættu og tryggja öryggi.
Jóhannes Páll Friðriksson, eigandi 3D verk