Hefðbundinn stjórnbúnaður hitakerfa

Verð fyrir félagsmenn
6.000 kr.
Verð
24.000 kr.
Þetta námskeið er fyrir pípulagningamenn sem vilja afla sér þekkingar á mismunandi gerðum af vélrænum stjórnbúnaði fyrir hitakerfi. Farið er í gegnum notkun á mismunandi gerðum lokum sem notaðir eru við þrýstistýringar, þrýstijafnara, mótþrýstiloka, þrýstiminnkara og hitastýriloka. Einnig er fjallað um varmaskipta, hvað þarf að hafa í huga við val á þeim.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir pípulagningamenn sem vilja afla sér þekkingar á mismunandi gerðum af vélrænum stjórnbúnaði fyrir hitakerfi.

Markmið:

Tilgangur námskeiðsins er að þátttakendur kunni skil á helstu þáttum hefðbundins stjórnbúnaðar fyrir hitakerfi.

Lýsing:

Farið er í gegnum notkun á mismunandi gerðum lokum sem notaðir eru við þrýstistýringar, þrýstijafnara, mótþrýstiloka, þrýstiminnkara og hitastýriloka. Kynntir eru helstu eiginleikar þessa búnaðar og hvað beri að hafa í huga við val á honum í hvert verkefni og stærðarákvörðun. Einnig verður fjallað um varmaskipta, hvað þarf að hafa í huga við val á þeim og hvernig stærðarútreikningar fara fram.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
8. október 2025 kl: 13:00 - 17:00
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Edda Jóhannesdóttir - [email protected]
Kennari
Benedikt Ingvason
Pípulagningamaður og vélvirki