Námskeiðið er ætlað umbrotsfólki, grafískum hönnuðum, markaðsfólki og öðrum sem vilja öðlast grunnfærni í gerð hreyfimynda til notkunar í stafrænu markaðsefni, á samfélagsmiðlum eða vefmiðlum. Engin fyrri reynsla af After Effects er nauðsynleg, en grunnkunnátta í hönnun og umbroti er æskileg.
Að veita þátttakendum traustan grunn í gerð hreyfimynda með Adobe After Effects og kynna möguleika þess í skapandi miðlun, með áherslu á einfaldar og áhrifaríkar lausnir.