Svansvottaðar byggingar

Verð fyrir félagsmenn
0 kr.
Verð
0 kr.
Námskeið fyrir þau sem eru eða ætla að byggja svansvottaðar byggingar. Markmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og íbúa byggingarinnar á notkunartíma.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara, byggingarstjóra og aðra sem ætla að byggja eða gerast ábyrgðarmenn Svansvottaðra bygginga.

Markmið:

Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um ferlið og hvað þarf að gera til þess að fá byggingu Svansvottaða.

Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og íbúa byggingarinnar á notkunartíma.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hugmyndafræði Svansvottunar og viðmiðin sem fela í sér hvað er hægt að votta.
  • Skyldukröfur, valkröfur, efnissamþykktir, utanumhald gagna, gæða- og verkferla, úttektir og fleira. 
  • Hlutverk ábyrgðarmanna Svansvottunar.
  • Byggingarferli Svansvottaðra bygginga.
  • Hvaða gögn þurfa liggja fyrir við upphaf framkvæmda. 
  • Hvernig staðið er að framkvæmdum og hlutverk þeirra sem koma að þeim. 
  • Hvaða gögnum ábyrgðaraðili þarf að safna á framkvæmdatíma og leggja inn til vottunar þegar byggingunni er lokið. 

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja hugmyndafræði svansvottunar og helstu viðmið.
  • Þekkja Kröfur sem gerðar eru til svansvottaðra húsa.
  • Vita hver er ábyrgð byggingaraðila.
  • Kunna skil á byggingarferli svansvottaðra húsa.
  • Vita hvaða gögn þurfa að liggja fyrir og þarf að votta.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Svaninn á Íslandi.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
23. september 2025 kl: 09:00 - 12:00
Námsmat
None
Tengiliður
Edda Jóhannesdóttir - [email protected]
Kennarar
Bergþóra Góa Kvaran
Bergþóra Góa Kvaran
Sérfræðingur

Bergþóra er arkitekt og sérfræðingur í Svansvottuðum byggingum hjá Umhverfis- og orkustofnun

G. Lilja Kristinsdóttir
G. Lilja Kristinsdóttir
Framkvæmdarstjóri Svansins á Íslandi

Guðrún Lilja er með mastersgráðu í Umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands og hefur unnið við Svansvottanir í rúman áratug og hefur einnig komið að fræðslu varðandi grænan lífstíl og valdeflingu neytenda.