MIG/MAG suða

Verð fyrir félagsmenn
12.500 kr.
Verð
50.000 kr.
Lærðu grunnatriði MIG/MAG-suðu og öðlastu hagnýta verklega færni til að framkvæma helstu suðuaðferðir af öryggi og fagmennsku.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar öllum sem vilja öðlast grunnþekkingu í MIG/MAG-suðu, jafnt byrjendum sem þeim sem vilja uppfæra eldri kunnáttu. Sérstaklega gagnlegt fyrir iðnaðarmenn, verkstæðisstarfsmenn og nýliða í málmvinnu.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum bóklega og verklega undirstöðu í MIG/MAG-suðu og gera þá hæfa til að framkvæma einfaldar suður með réttum tækjum, efnum og verklagi.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnatriði rafmagnsfræðinnar sem tengjast suðu
  • Undirbúning og meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu
  • Stillingu suðuvéla, val á réttu suðugasi og mat á gasflæði
  • Suðu á stúfsuðum og kverksuðum með MIG/MAG aðferð
  • Öryggisatriði á vinnustað og notkun hlífðarbúnaðar

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta framkvæmt einfaldar MIG/MAG-suður með réttum búnaði
  • Þekkja helstu stillingar og verklag
  • Geta nýtt öryggisbúnað og fylgt vinnureglum
  • Hafa hagnýta reynslu af MIG/MAG tækni

Aðrar upplýsingar:

Kennari fylgist náið með þátttakendum og veitir endurgjöf. Nauðsynleg tæki, tól og hlífðarbúnaður eru á staðnum. Stafræn viðurkenning er veitt fyrir þátttöku.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

15. september 2025 kl: 09:00 - 16:00
16. september 2025 kl: 09:00 - 14:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Hilmar Brjánn Sigurðsson
Kennari
Hilmar Brjánn Sigurðsson
suðusérfræðingur IWS og vélvirki

Hilmar Brjánn, hefur unnið með málma, samsetningu þeirra og meðhöndlun alla sína starfsæfi. Unnið við þjálfun og kennslu í málmsuðu frá 2016.