Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast grunnatriðum í málmsuðu – hvort sem það er til undirbúnings fyrir vinnu á verkstæði eða sem áhugamál. Sérstaklega gagnlegt fyrir nýliða í iðnaði sem vinna í málmsuðu.
Að þátttakendur öðlist færni og skilning á helstu suðuaðferðum, stillingum og öryggisatriðum sem tengjast málmsuðu.
Námskeiðið fer fram í húsnæði Iðunnar Vatnagörðum 20 eða úti á landi eftir óskum. Unnið er með raunverulegan búnað og tæki. Nemendur þurfa að vera í viðeigandi vinnufatnaði og geta fengið aðstoð við val á hlífðarbúnaði eftir þörfum.
Hilmar Brjánn, hefur unnið með málma, samsetningu þeirra og meðhöndlun alla sína starfsæfi. Unnið við þjálfun og kennslu í málmsuðu frá 2016.