TIG suða

Verð fyrir félagsmenn
12.500 kr.
Verð
50.000 kr.
Náðu tökum TIG-suðu – bókleg og verkleg þjálfun í TIG suðu

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem vilja tileinka sér grunnfærni í TIG-suðu, hvort sem þeir eru að hefja nám í iðngrein eða bæta við sig sérhæfðri verkþekkingu. Hentar sérstaklega þeim sem vinna eða hyggjast vinna við málmsuðu, viðhald eða málmsmíði.

Markmið:

Að veita þátttakendum bóklega og verklega undirstöðu í TIG-suðu, svo þeir geti unnið örugglega með ólíkum búnaði og efni við suðuvinnu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu
  • Still­ing á suðuvélum og val á réttum gasi
  • Mat og mæling á gasflæði
  • Val og slípun suðuskauta
  • Framkvæmd á einföldum TIG-suðum (t.d. stúfsuður og kverksuður)
  • Öryggisatriði og meðferð rafmagnstækja við suðu
  • Grunnatriði rafmagnsfræðinnar sem tengjast suðuvinnu

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta framkvæmt einfaldar TIG-suður
  • Beitt viðeigandi búnaði og verklagi
  • Þekkt öryggisatriði og viðhald tækja
  • Nýtt þekkinguna í iðn- eða viðhaldsverkefnum

Aðrar upplýsingar:

Engar sérstakar forkröfur en grunnskilningur á iðnaðarumhverfi er kostur. Nemendur þurfa að mæta í viðeigandi vinnufatnaði. Allur nauðsynlegur búnaður og tæki verða á staðnum.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

29. september 2025 kl: 09:00 - 16:00
30. september 2025 kl: 09:00 - 14:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Hilmar Brjánn Sigurðsson
Kennari
Hilmar Brjánn Sigurðsson
suðusérfræðingur IWS og vélvirki

Hilmar Brjánn, hefur unnið með málma, samsetningu þeirra og meðhöndlun alla sína starfsæfi. Unnið við þjálfun og kennslu í málmsuðu frá 2016.