3D prentun framhald

Verð fyrir félagsmenn
23.750 kr.
Verð
95.000 kr.
Dýpkaðu kunnáttu þína í 3D prentun - sniðið að þeim sem vilja prenta meira.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar iðnaðarmönnum, verkfræðingum, tækniteiknurum og öðrum notendum þrívíddarprentara sem vilja öðlast meiri færni í prenttækni og efnisnotkun. Þátttakendur þurfa að hafa grunnþekkingu á 3D prentun, þar á meðal notkun sneiðforrita og stýringu prentara.

Markmið:

Að dýpka þekkingu og verklega færni þátttakenda í þrívíddarprentun með áherslu á flóknari prentverkefni, ný/mismunandi efni og ólíkar prentaðferðir.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Notkun resínprentara (SLA/DLP) og öryggisatriði við meðhöndlun efna
  • Málmprentun með mismunandi aðferðum og nauðsynleg eftirvinnsla
  • Prentun með flóknari efnum t.d. ABS, PETG, nælon, PC, PPS-CF o.sfr.
  • Flókin prentlíkön, stoðbyggingar og fínstilling sneiðiforrita
  • Viðhald búnaðar, stillingar og frágang á prentuðum hlutum

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta notað resínprentara á öruggan og árangursríkan hátt
  • Skilja og framkvæma undirstöðuatriði í málmprentun og meta möguleika í iðnaði
  • Beita fínstillingum á prentara og hugbúnað fyrir flóknari efni
  • Skipuleggja og framkvæma flókin prentverkefni með stuðningsbyggingum
  • Framkvæma reglubundið viðhald og frágang prentaðra hluta í takt við efnisval

Aðrar upplýsingar:

  • Þátttakendur eiga að koma með eigin fartölvu og góða tölvumús
  • Prentarar eru fyrir alla á staðnum, Bambu Lab A1, P1S, X1C og H2D, ásamt Raise3D Forge 1 málmprentara og resin prenturum.
Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

29. október 2025 kl: 16:00 - 19:00
3. nóvember 2025 kl: 16:00 - 19:00
5. nóvember 2025 kl: 16:00 - 19:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Virk þátttaka
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennarar
Jóhannes Páll Friðriksson
Jóhannes Páll Friðriksson
Sérfræðingur í 3D prentun

Jóhannes Páll Friðriksson, eigandi 3D verk

Óttar Freyr Einarsson
Óttar Freyr Einarsson
Eigandi G-code sem er 3D prentþjónusta.

Óttar Freyr er flugvirki að mennt, hefur sérhæft sig í ástandsgreiningu og vinnur við það hjá HD ehf.