Sveinspróf í hönnunar- og handsverksgreinum

AdobeStock_525813101

Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?

  • Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók
  • Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla
  • Eða að vera á lokaönn í iðnnámi. Þá þarftu staðfestingu um útskrift frá þínum skóla.

Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?

  • Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið
  • Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum
  • Eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn

Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?

  • Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni

Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.

Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.

Sveinspróf í gull- og silfursmíði 

Næsta sveinsprófi í gull- og silfursmíði verður haldið í júní 2026. Umsóknarfrestur er til 01.apríl 2026

Prófþáttalýsing

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í gull- og silfursmíði 2023-2027

Sveinspróf í klæðskurði

Næsta sveinsprófi í klæðskurði verður haldið maí/júní 2026. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2026.

Prófþáttalýsing

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í klæðskurði 2023-2026

Sveinspróf í kjólasaum

Næsta sveinspróf í kjólasaum verður haldið í maí / júní 2026. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2026.

Prófþáttalýsing

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í kjólasaumi 2023-2026