Sveinspróf í bygginga- og mannvirkjagreinum

Ung smíða stelpa

Athugið að ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?

  • Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók eða láta fylgja staðfestingu frá skóla að þú munir ljúka henni á yfirstandandi önn.
  • Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi og útskrifast fyrir töku sveinsprófs.

Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?

Samkvæmt reglugerð um sveinspróf er nauðsynlegt að skila inn eftirfarandi gögnum:

  • Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið.
  • Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn og fyrir töku sveinsprófs.
  • Staðfestingu meistara á umsókn í sveinspróf

Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?

  • Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni

Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.

Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.

Sveinspróf í húsasmíði

Næstu sveinspróf verða haldin 5.-7. júní 2026. Umsókarfrestur er til 1.apríl nk

Upplýsingar til próftaka í húsasmíði

prófþáttalýsing janúar 2026

Sveinsprófsnefnd: 

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í húsasmíði 2023-2027

Sveinspróf í húsgagnasmíði

Næsta sveinspróf í húsgagnasmíði verður haldið í lok maí, byrjun júní 2026. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2026.

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í húsgagnasmíði 2023-2027

Sveinspróf í múraraiðn

Sveinspróf í múraraiðn verður haldið 8.-12. júní nk í Tækniskólanum, Skerjafirði

Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2026

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í múraraiðn 2023-2027

Sveinspróf í málaraiðn verður haldið í Tækniskólanum í Reykjavík 1.-6. júní n.k. Umsóknarfrestur er til 1.apríl.

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í málaraiðn 2023-2027

Sveinspróf í pípulögnum

Sveinspróf í pípulögnum verður haldið hjá Iðunni fræðslusetri og hefst það um miðjan ágúst og stendur yfir í tvær vikur. Gert er ráð fyrir nokkrum hópum í verklegt próf, hver hópur er í þrjá daga í verklegum hluta prófsins. Nánari dagsetningar verða birtar um leið og þær liggja fyrir. Umsóknarfrestur er til 5. júní

Upplýsingabréf og verkfæralisti

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í pípulögnum 2023-2027

Sveinspróf í veggfóðrun og dúkalögn

Sveinspróf í veggfóðrun og dúkalögn verður haldið í október. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst.

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í veggfóðrun 2023-2027

Sveinspróf í húsgagnabólstrun

Sveinspróf í húsgagnabólstrun hafa verið haldin eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Helgu Björgu, [email protected]

Sveinsprófsnefnd:

Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í húsgagnabólstrun 2023-2027