Sveinspróf í málm- og véltæknigreinum

Næstu sveinspróf í málm- og véltæknigreinum
Engin próf eru opin til umsóknar í augnablikinu
Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?
- Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók
- Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi og útskrifast fyrir töku sveinsprófs.
Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?
- Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið
- Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn og fyrir töku sveinsprófs.
Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?
- Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.
Sveinspróf í blikksmíði
Næsta sveinspróf í blikksmíði verður haldið 12. - 14 september 2025. Umsóknarfrestur er til 8.ágúst 2025
Upplýsingar til próftaka
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í rennismíði
Næsta sveinspróf í rennismíði verður haldið í febrúar 2026. Umsóknarfrestur er til 05.01.2026
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í stálsmíði
Næsta sveinspróf í stálsmíði verður haldið 13. - 15.ágúst 2025. Umsóknarfrestur var til 15.júní 2025
Upplýsingar til próftaka í stálsmíði
Sveinsprófsnefnd:
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í stálsmíði og málmsuðu 2024-2028
Sveinspróf í veiðarfæratækni
Næsta sveinspróf í veiðarfæratækni verður í sept/okt 2025. Umsóknarfrestur er til 15.ágúst 2025
Sveinsprófsnefnd
Stjórnarráðið | Sveinsprófsnefnd í veiðarfæratækni 2024-2028
Sveinspróf í vélvirkjun
Næsta sveinspróf í vélvirkjun 19. - 21.september 2025. Umsóknarfrestur er til 15.júní 2025.
Gömul próf - sýnishorn
Nálarloki
Eldsneytisloki
Sveinsprófsnefnd:
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í málm-, véltækni og framleiðslugreinum veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.