Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati eru 23 ára aldur og 3 ára staðfest starfsreynsla í viðkomandi grein. Að loknu raunfærnimati er hægt að halda áfram námi og ljúka sveinsprófi.
Iðan fræðslusetur annast raunfærnimat í flestum iðngreinum fyrir utan rafiðngreinar. Þær greinar sem boðið er upp á raunfærnimat á næstunni eru:
Smelltu hér til að óska eftir ráðgjöf í raunfærnimati
Raunfærnimat er þeim sem hafa ekki lokið námi úr framhaldsskóla að kostnaðarlausu en aðrir greiða fyrir það.Hér er hægt að fá frekari upplýsingar um kostnað í raunfærnimati.
Smelltu hér til að sækja um raunfærnimat
Allar nánari upplýsingar um raunfærnimat veita náms- og starfsráðgjafar Iðunnar í síma 590 6400 eða radgjof(hjá)idan.is.
Raunfærnimat er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað.