Í tvo áratugi hefur Iðan fræðslusetur verið drifkraftur þekkingar, færni og framþróunar í íslenskum iðngreinum. Frá stofnun árið 2006 hefur Iðan tengt saman nám og atvinnulíf, stutt við fagmennsku og lagt grunn að sterkari framtíð iðnaðar á Íslandi.
Árið 2026 fögnum við 20 ára afmæli – tímamótum sem endurspegla árangur, öflugt samstarf og uppskeru ótal einstaklinga sem hafa byggt upp þekkingu sína með Iðunni. Þetta er saga af fólki sem lærir, vex og skapar.
Iðan er vettvangur þar sem reynsla og nýsköpun mætast. Við styðjum við faglegt nám, símenntun og þróun svo íslenskar iðngreinar standi sterkar – í dag og til framtíðar.
Afmælisárið er tilefni til að horfa bæði til baka og fram á við. Við fögnum því sem áunnist hefur og höldum áfram að byggja upp þekkingu, efla færni og styðja við næstu kynslóð fagfólks.
Saga Iðunnar er saga af þróun, samstarfi og stöðugai leit að betri lausnum í þágu íslenskra iðngreina. Á síðustu tveimur áratugum hafa orðið til ný tækifæri, nýjar leiðir í námi og símenntun, og sterkari tenging milli fólks og fagmennsku.
Tímalínan hér að neðan gefur innsýn í helstu áfanga á þessari vegferð – frá fyrstu skrefum til þeirra fjölbreyttu verkefna og árangurs sem móta starfsemi Iðunnar í dag.
Hver áfangi segir sína sögu um breytingar, framfarir og auðvitað fólkið sem hefur lagt sitt af mörkum.
Skoðaðu hvernig Iðan hefur þróast í 20 ár í myndasyrpunni hér fyrir neðan.
Merki Iðunnar hefur fengið sérstakt viðhafnarútlit sem markar þessi tímamót og dregur fram þá vegferð sem fyrirtækið hefur farið á síðustu tveimur áratugum.
Afmælisútlitið byggir á núverandi merki Iðunnar og heldur þannig sterkri tengingu við sjónræna ásýnd fyrirtækisins. Í útfærslunni er leikið með jafnvægi milli ísómetrísks forms táknsins og mýkri lína tölustafanna 20, þannig að til verður heild sem er bæði hátíðleg og nútímaleg.
Viðhafnarmerkið verður nýtt í kynningu á afmælisárinu – á vef Iðunnar, á samfélagsmiðlum og á viðburðum. Með því er saga Iðunnar og hlutverk hennar í þágu iðngreina á Íslandi dregið fram með skýrum og eftirminnilegum hætti.
Yfirskriftin „þróun og þekking í 20 ár“ undirstrikar kjarna starfs Iðunnar og mikilvægi hennar fyrir faglegt nám, fræðslu og uppbyggingu innan íslensks iðnaðar.
Merki Iðunnar var hannað af Höllu Mixa og viðhafnarútlitið af Önnu Pálínu hjá Hvíta húsinu.