Stefnur

Gildi Iðunnar

Iðan fræðslusetur er í fararbroddi í símenntun iðngreina, með fræðslu, miðlun og þjónustu sem stuðlar að framþróun í iðnaði. 

Framsækni

Við erum í fararbroddi og höfum metnað til að tileinka okkur framsæknar nýjungar. Víðsýni okkar og viðhorf endurspeglar áhuga á að nýta og miðla þekkingu hvers annars. 

Virðing

Við styðjum við jafnrétti til náms og gætum trúnaðar í okkar störfum. Viðhorf okkar til hagsmunaaðila, verkefna, samstarfsfólks og samfélagsins einkennist af virðingu, jákvæðni, fordómaleysi og heiðarleika. 

Fagmennska

Við eflum okkar eigin þekkingu og færni af fagmennsku. Jákvæð upplifun viðskiptavina skiptir okkur meginmáli og þar berum við ábyrgð á að hafa jákvætt viðhorf að leiðarljósi. 

Alþjóðastefna

Iðan leggur áherslu á að vera virk í alþjóðlegu samstarfi og samfélagi. Alþjóðastefna Iðunnar stuðlar að aukinni samvinnu við fyrirtæki, skóla og stofnanir erlendis með það að leiðarljósi að stuðla að gagnkvæmum skilningi og virðingu fyrir starfsháttum og menningu í mismunandi löndum.  

Iðan vill stuðla að því að iðnnemar, nýsveinar, leiðbeinendur, starfsfólk og aðrir hagaðilar Iðunnar fái tækifæri að kynnast nýjungum og stefnum í iðngreinum erlendis. Jafnframt er mikilvægt að fá aukinn skilning á mismunandi starfsháttum erlendis og ólíkri menningu. Þetta samræmist vel stefnu Iðunnar um að efla samvinnu, nýsköpun, sjálfbærni og þjónustu við félagsmanninn. 

Iðan leggur áherslu á:

  • Að taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi 
  • Að opna sjóndeildarhringinn fyrir því að Evrópa sé eitt atvinnusvæði 
  • Að styðja við iðnnema, nýsveina, leiðbeinendur, starfsfólk og hagaðila til þátttöku í alþjóðlegum verkefnum 
  • Að kynnast mismunandi menningu og starfsháttum í iðngreinum 
  • Að efla færni iðnnema, nýsveina, leiðbeinanda og starfsfólks 

Greiðsluskilmálar Iðunnar

Greiðsluskilmálar

Ganga þarf frá greiðslu áður en nám hefst og telst skráning ekki gild fyrr en búið er að ganga frá greiðslu.

Greiðslumöguleikar

Mögulegt er að greiða fyrir námskeið með helstu kredit- og debetkortum og fer greiðslan í gegnum örugga greiðslugátt Teya.

Endurgreiðsla

Hægt er að fá námskeið endurgreitt í sérstökum tilfellum:

· Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið og tilkynnir það skriflega í tölvupósti á netfangið [email protected] a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst.

· Ef lágmarksfjöldi þátttakenda næst ekki og námskeið er fellt niður endurgreiðir Iðan námsgjaldið að fullu. Þetta á einnig við ef námskeið er flutt á nýja dagsetningu og skráður þátttakandi getur ekki nýtt sér námskeiðið.

Öryggisskilmálar

Fyllsta öryggis er gætt með greiðslur fyrir námskeið og fara greiðslur með greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Teya.

Lög og varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Persónuverndarstefna Iðunnar

Iðan fræðslusetur leggur áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Iðan leitast við að takmarka vinnslu persónuupplýsinga eins og hægt er og safnar ekki persónuupplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er. 

Iðan heldur út margvíslegri þjónustu á sviði menntunar í iðnaði. Þjónustan okkar er meðal annars: 

  • Endurmenntun iðnaðarmanna 
  • Þjónusta við mennta-og barnamálaráðuneytið um gerð námsamninga og framkvæmd sveinsprófa 
  • Þjónusta við Háskóla, iðnaðar-og nýsköpunarráðuneyti varðandi mat og viðurkenningu á menntun og starfsreynslu í löggiltri iðn erlendis frá 
  • Raunfærnimat í iðnaði 
  • Styrkir til náms 
  • Þróunarverkefni 

Til að geta nýtt þjónustu okkar þarft þú að veita okkur upplýsingar um þig. Við notum gögn frá þér til að mæla og skilja betur hvernig við getum bætt þjónustu okkar við þig með því að senda til þín þjónustu kannanir, auglýsingar um námskeið eða fréttir. Við notum einnig ópersónugreinanleg gögn við söfnun á tölfræðilegum gögnum t.d. fjöldi sveinsprófstaka eftir greinum. Þú hefur ávallt val um hvaða upplýsingar þú vilt fá til þín þegar þú nýtir þjónustu frá okkur. Ef þú ætlar að nýta þjónustu okkar þá þarft þú að láta af hendi umbeðnar upplýsingar hverju sinni. Þú færð nánari upplýsingar undir hverjum þjónustulið hvaða upplýsingum er verið að safna, geymslutíma, eyðingu gagna, aðgang og fleira. 

Öll vinnsla á persónuupplýsingum, þ.m.t. öflun, skráning, vistun og meðferð þeirra á vegum Iðunnar, lýtur lögum nr.90 /2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og öðrum reglum sem settar hafa verið á grundvelli persónuverndarlaga („persónuverndarlög“). Iðan fræðslusetur gætir þess að sú vinnsla persónuupplýsinga sem Iðan hefur með höndum, sem ábyrgðaraðili vinnslu, sé í samræmi við persónuverndarlög. 

Hér að neðan er að finna upplýsingar um söfnun og vinnslu persónuupplýsinga í gegnum vef Iðunar. Hér að neðan er einnig að finna upplýsingar um réttindi þín og hvernig þú getur nýtt þau. 

Upplýsingar sem þú lætur okkur í té

Vera má að þú látir okkur í té með beinum eða óbeinum hætti persónuupplýsingar er varða þig, til dæmis þegar nýtir þér þjónustu sem við bjóðum upp á, hefur samband við okkur gegnum vef eða með öðrum hætti. Þessar upplýsingar geta verið:

  • Persónugreinanlegar upplýsingar – nafn, heimilisfang, netfang, kennitala, símanúmer o.s.frv.

Upplýsingar sem við söfnum um þig

Þegar þú nýtir þér þjónustu okkar (t.d. þegar þú skráir þig á námskeið, sækir um námssamning, sveinspróf eða raunfærnimat) þá getur verið að við söfnum eftirfarandi upplýsingum:

  • Persónugreinanlegar upplýsingar – t.d. nafn, kennitölu, netfang, símanúmer og heimilisfang
  • Upplýsingar um námsferil þinn
  • Fjárhagsupplýsingar – t.d. lífeyrissjóðsyfirlit þegar sótt er um sveinspróf
  • Námsferill
  • Vinnuvottorð, t.d. þegar gerður er námssamningur
  • Viðskiptasaga – upplýsingar um kaup, greiðslur og greiðslukortasamþykki vegna fyrri kaupa
  • Upplýsingar um samskipti þín við Iðuna
  • Tæknilegar upplýsingar um hvernig þú nýtir vef Iðunnar – IP-tala, tungumálastillingar, vafrastillingar, tímabeltisstillingar o.fl.
  • Landfræðilegar upplýsingar – landfræðileg staðsetning

Þær upplýsingar sem þú lætur okkur í té auk upplýsinga um vöru eða þjónustu og fjárhagsuppýsingar eru nauðsynlegar til þess að við getum efnt okkar samningsskyldur gagnvart þér (veitt umbeðna þjónustu). Tilgangur söfnunar annarra upplýsinga er skýrður hér á eftir.

Við notum persónuupplýsingar í eftirfarandi tilgangi (listinn er ekki tæmandi):

  • til að svara fyrirspurnum og bregðast við óskum þínum, t.d. til að senda þér fréttabréf eða til að svara spurningum þínum og athugasemdum.
  • til að senda stjórnunarupplýsingar til þín, t.d. upplýsingar um breytingar á skilmálum, skilyrðum og stefnum. Þar sem þessar upplýsingar geta verið mikilvægar fyrir notkun þína á síðunum, getur þú ekki valið að fá ekki þessar upplýsingar.
  • til að veita þér þjónustu, s.s. skrá þig á námskeið, skrá umsókn um námssamning eða sveinspróf, umsókn um námsstyrki, raunfærnimat og fleira. 
  • til að upplýsa um fræðsluframboð okkar og/eða þjónustu, kynningar og verkefni og til að geta sent boðskort um þátttöku í einstökum verkefnum eða viðburðum og í beinum markaðstengdum tilgangi.
  • til að sníða heimsóknir þínar á síðurnar að þér með því að bjóða þér vörur, þjónustu og tilboð sem henta þér með hliðsjón af þeim persónuupplýsingum sem þú veittir okkur.
  • til að gera þér kleift að taka þátt í könnunum, happdrættum, kynningarherferðum með verðlaunum, keppnum og öðrum kynningum og til að þú getir stjórnað slíkum aðgerðum. 
  • til að leyfa þér að taka þátt í deilingu efnis á samfélagsmiðlum, þ.m.t. með virku streymi á samfélagsmiðlum.
  • í viðskiptatilgangi okkar, eins og við að greina og stjórna fyrirtækjum okkar, innri stjórnun og áætlanagerð fyrirtækjanna, við markaðsrannsóknir, endurskoðun, við þróun nýrrar vöru, til að bæta síðurnar okkar, til að bæta þjónustuna og vörurnar, til að bera kennsl á notkunarhætti, til að meta skilvirkni kynningarherferða okkar, til að sérsníða upplifun síðanna og innihalds þeirra skv. fyrri notkun þinni á síðunum, og til að mæla ánægju viðskiptavina og veita viðskiptavinum þjónustu (þ.m.t. úrræðaleit í tengslum við mál sem koma upp hjá viðskiptavinum).

Iðan fræðslusetur deilir í ákveðnum tilfellum upplýsingum með aðilum sem tengjast ákveðnum verkefnum og þá einungis í þeim tilgangi sem tilgreindur er. 

Iðan fræðslusetur geymir þínar persónuupplýsingar með öruggum hætti samkvæmt verklagi sem á við um hverja vinnslu fyrir sig.

Það er mismunandi hversu lengi við geymum upplýsingarnar. Iðan fræðslusetur fellur undir lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og öll mál sem varðveita skal samkvæmt þeim eru geymd í 30 ár og að því loknu færð til Þjóðskjalasafns Íslands. Þetta á t.d. við um beiðnir um fyrirspurnir á grundvelli upplýsingalaga og fyrirspurnir sem berast gegnum „hafðu samband“ form á vefnum. Önnur gögn er innihalda persónuupplýsingar eru einungis geymd í þann tíma sem nauðsynlegt er og að þeim tíma loknum er þeim eytt í samræmi við verklag Iðunnar þar um.

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá upplýsingar um og aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við varðveitum um þig. Þú getur einnig í einhverjum tilvikum átt rétt á að persónuupplýsingar um þig verði leiðréttar, framsendar annað eða þeim eytt. 

Rafræn vöktun

Tilgangur vöktunarinnar: Í öryggis- og eignavörsluskyni. 
Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna fyrirtækissins af öryggis- og eignavörslu. 
Tegundir persónuupplýsinga:Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra. 
Viðtakendur: Allt myndefni er aðgengilegt öryggisdeild Iðunnar sem hefur umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið gert tryggingafélagi aðgengilegt sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun. 
Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt þegar fyrningartími viðkomandi krafna er liðinn. Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Réttindi einstaklinga: Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum. 
Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: Iðan fræðslusetur, kennitala: 551203-2980 netfang: [email protected]

Sjálfbærnistefna Iðunnar

Iðan hefur sjálfbærnihugsun að leiðarljósi í allri þekkingarmiðlun og þjónustuframboði. Til að styðja við stefnuna hefur sjálfbærniráð Iðunnar og starfsfólk valið fjögur markmið af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til að fylgja í takt við gildi fyrirtækisins. 

Menntun fyrir alla félagsmenn Iðunnar  

  • Efla sjálfbærnivitund hjá félagsmönnum Iðunnar með markvissum og mælanlegum aðgerðum 
  • Fjölga nemendum í iðn-, verk- og tækninámi 
  • Stuðla að fjölbreyttari leiðum í iðnnámi fullorðinna 

Áhersla á jafnrétti kynja í öllu sínu náms- og þjónustuframboði 

  • Vinna að jafnara kynjahlutfalli í öllum iðngreinum 
  • Vekja athygli á vinnuframboði iðngreina óháð kynjum 
  • Greina og setja mælanleg markmið fyrir sókn kynja í fræðslu fyrir ólíkar atvinnugreinar 

Stuðla að aukinni samkeppnishæfni fyrirtækja og félagsmanna Iðunnar 

  • Auka framleiðni í sátt við umhverfi og samfélag 
  • Efla þjónustuframboð í ráðgjöf og fræðslu um sjálfbærni 

Veita fræðslu og ráðgjöf um ábyrga neyslu og framleiðslu 

  • Móta og innleiða sjálfbærnistefnu Iðunnar 
  • Efla fræðslu um sjálfbærni í íslenskum iðnaði 

Sjálfbærniskýrsla Iðunnar 2023

Sjálfbærniskýrsla Iðunnar 2022