Fyrir þau sem fást við að hanna og sjá um að hlaða innveggi í húsum úr frauðsteypu (gasbeton) hleðslusteinum.
Að skerpa á helstu áhersluatriðum varðandi uppsetningu og frágang hleðsluveggja.
Aðrar upplýsingar:
Notaðir verða Lemga milliveggjasteinar úr frauðsteypu frá þýska fyrirtækinu Schlamann og munu sérfræðingar frá þeim leiðbeina á námskeiðinu. Þessi viðburður fer fram á ensku og verður boðið upp á þýðingar í íslensku. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Steypustöðina og er þátttakendum að kostnaðarlausu.