Tjarnargata 22 - fræðslufundur Húsverndarstofu

Ókeypis viðburður
Bjarni Agnar Agnarsson, eigandi hússins að Tjarnargötu 22 í Reykjavík mun deila reynslu sinni af lífinu í húsi sínu, verndun og viðhaldi þess, en húsinu er vel við haldið og það er enn mjög upprunalegt. Frítt inn og öll velkomin!

Húsverndarstofa býður til fræðslufundar í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni, fimmtudaginn 26. Febrúar kl. 17-19, um lífið í gömlu húsi. Að þessu sinni mun Bjarni Agnar Agnarsson, eigandi hússins að Tjarnargötu 22 í Reykjavík, deila reynslu sinni af lífinu í húsi sínu, verndun og viðhaldi þess, en húsinu er vel við haldið og það er enn mjög upprunalegt. Frítt inn og öll velkomin!

Húsið við Tjarnargötu 22 er eitt hinna glæsilegu timburhúsa í bárujárns-sveitserstíl sem standa við Tjörnina í Reykjavík. Húsið, sem var reist árið 1906 eftir uppdráttum Rögnvaldar Ólafssonar arkitekts, stendur enn í sinni upprunalegu mynd þökk sé góðu og reglulegu viðhaldi.

Húsið var reist fyrir Klemens Jónsson landritara, æðsta embættismann Stjórnarráðsins sem síðar varð bæði þingmaður og ráðherra. Húsið er enn í fjölskyldunni en núverandi eigandi þess er barnabarn Klemens, Bjarni Agnar Agnarsson.

Á fundinum mun Bjarni Agnar fræða viðstadda um húsið sjálft, áhugaverða sögu þess auk þess að veita innsýn í lífið með gömlu friðlýstu húsi.

Staðsetning og tími
Árbæjarsafn - Borgarsögusafn Reykjavíkur, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík

26. febrúar 2026 kl: 17:00 - 19:00