HAFÐU ÁHRIF - Samtal við starfsfólk í iðngreinum á Vesturlandi

Ókeypis viðburður
Iðan fræðslusetur býður félagsfólki í samtal um fræðslu og þjálfun í iðnaði á Hótel Borgarnesi þann 4. mars.

Ræðum um tækifæri og áskoranir starfsfólks í iðnaði á Vesturlandi.

Dagskráin:

14:30 Hús opnar
Kaffi og léttar veitingar.

15:00 Iðan fræðslusetur - Hlutverk og starfsemi
Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdarstjóri Iðunnar fræðsluseturs.

15:10 Reynslusaga úr síbreytilegum iðnaði
Myndband - Viðtal við félagsmann Iðunnar fræðsluseturs um hvernig símenntun hefur skilað sér í daglegu starfi.

15:20 Vinnuhópar
Málin rædd, áskoranir rýndar og mögulegar lausnir lagðar fram.

16:30 Samantekt og niðurstöður
Helstu niðurstöður vinnuhópa ræddar.

17:00 Gervigreind í iðnaði- örnámskeið
Hjörtur Sigurðsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Mynstra, gefur dæmi um það hvernig gervigreind nýtist í iðnaði. 

4. mars 2026 kl: 15:00 - 18:00
Hótel Borgarnes, Egilsgata 16, 310 Borgarnesi