Dagskráin hefst kl. 16:00 með fyrirlestrum og vinnusmiðjum í fjórum stofum, þar sem farið verður yfir hugmyndir, þróun og tækifæri í prent- og hönnunargeiranum. Samhliða opnar birgjagólf, þar sem fyrirtæki kynna tæki, efni og lausnir og gefa gestum tækifæri til að kynnast því nýjasta.
Að lokinni fræðsludagskrá kl. 18:30 tekur við skemmtileg kvöldstund þegar Ari Eldjárn stígur á svið með uppistand. Kvöldinu lýkur með léttum veitingum, tónlist og góðu spjalli.
Bakhjarlar Dags prents og hönnunar í ár eru: Gunnar Eggertsson hf, SI, Aton og GRAFÍA.
Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar og Kristjana Björg Guðbrandsdóttir, leiðtogi prent- og miðlunargreina bjóða gesti velkomna.
Gundula Ullah frá Funke Media talar um sjálfbærni prents hjá þýska fjölmiðlarisanum Funke Media sem gefur út tugi vinsælla blaða og tímarita í Þýskalandi. Hvers vegna er mikilvægt að halda úti prentuðum fjölmiðlum?
Moritz Feil frá Fogra Institute fjallar um litastillingar og stýringar í stafrænni prentun. ISO staðla, ECG litastillingar, tækifæri í gæðamálum og námið hjá Fogra sem Iðan er að þróa samstarf um.
Sigurjón Ólafsson hjá Funksjón stafrænni ráðgjöf fjallar um það hvernig stafræna væðingin fór langt fram úr sér og skrefin sem við þurfum að taka til baka.
Reynir Traustason fjölmiðlamaður og útgefandi fjallar um útgáfufyrirtækið sitt Góðan punkt og áratugalangt samstarf sitt við íslenskar prentsmiðjur.
Nemendur Tækniskólans fjalla um verkefnið Spjaldanna á milli og hvers vegna nýsköpunarverkefni um sjálfbærni og varðveislu vinnuaðferða í bókbandi skipta máli.
Gunnar Sigurðsson hjá SI og Díana Sigurfinnsdóttir frá Prentmet Odda fjalla um breytingar sem eru að verða á reglugerðum og mörkuðum úti í heimi. Hvað getum við gert hér heima? Eru falin tækifæri í breytingunum?
Siggi Odds hönnunarstjóri Aton og Hólmfríður Benediktsdóttir leturhönnuður hjá Aton halda erindi.
Málfríður Finnbogadóttir hjá Prentsögusetri ræðir um mikilvægi prentmenningar fyrir lýðræðið og segir frá merkilegri uppbyggingu í Skálholti.
Björgvin Pétur Sigurjónsson prentsmiður og hönnunarstjóri frá Jökulá með innslag.
Ari Eldjárn stígur á stokk og fer með gamanmál. Veitingar og tónlist.
Birgjasvæði opnar 15:30 þar kynna eftirtaldir þjónustu sína, vörur og nýjungar.
Hlökkum til að hitta ykkur! Salurinn opnar klukkan 15.30 og fyrirlestrar hefjast kl. 16.00.