Vottuð örnámskeið í ferðaþjónustu

Ókeypis fræðsla
Skráðu þig ókeypis á fimm vefnámskeið í samvinnu við LobsterInk.

Fyrir hverja:

Námskeiðin henta sérstaklega þeim sem starfa í hótel- og veitingagreinum, heilsulindum eða við ferðaþjónustu.

Markmið:

Markmið með námskeiðunum er að efla hæfni fagfólks sem starfar á breiðu sviði í ferðaþjónustu.

Á námskeiðunum verður fjallað um:

Í boði eru eftirfarandi námskeið: Matvælaöryggi, stafræn færni í gestamóttöku, leiðtogahæfileikar í ferðaþjónustu, hráefnissnýting og sjálfbærni í eldhúsi og að lokum sjálfbærni í ferðaþjónustu með áherslu á heilsulindir og herbergisþrif. Að námskeiðum loknum fá þátttakendur alþjóðlega viðurkenningu til marks um hæfni þeirra.

Að loknu námskeiðum á þátttakandi að:

Kunna skil á áhersluatriðum þeirra námskeiða sem hann velur sér en hver og einn velur sér nám sem hentar hans starfsssviði og áhuga. Hvert námskeið felur í sér ákveðinn lista af hæfni sem farið er sérstaklega í og er römmuð inn af ESCO hæfniviðmiðum sem eru í takt viðEQF færnirammann.

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðin sem um ræðir eru vefnámskeið. Þátttakendum verður sendur aðgangur að námskeiðunum skömmu eftir skráningu hér á vefnum og leiðbeiningar um nám. Tengiliðir námskeiða: [email protected] og [email protected]

MCEU_logo (1)

Iðan og SAF standa að námskeiðunum sem eru unnin í samstarfi við LobsterInk. Boðið er upp á þessi námskeið vegna þátttöku Iðunnar í evrópska MCEU-verkefninu. Sjá nánar á heimasíðu MCEU.