Hádegiskveikjan: Slæmt orðspor spjallmenna

Verð fyrir félagsmenn
Frítt
Verð fyrir aðra
2.500 kr.
Er slæmt orðspor spjallmenna afturkræft? Er gervigreindin að bjarga málunum?

Sigurjón Ólafsson hjá Funksjón ræðir um spjallmenni og áhrif þeirra á þjónustu og ímynd fyrirtækja. Hefðbundin spjallmenni hafa vont orð á sér, fólk er búið að missa trúna en ný tegund spjallmenna er að breyta leiknum. Það getur þó reynst erfitt að snúa við áliti almennings. Sigurjón tekur dæmi af mörgum vel heppnuðum gervigreindarspjallmennum.

Fyrirlesturinn er sá fyrsti í röðinni um málefni sem snerta grafíska miðlun og hönnun. Léttar veitingar í boði.

Kennslustofan Herðubreið er í húsi Fagfélaganna að Stórhöfða 29. Inngangur í kennslustofuna er aftan við húsið.

Staðsetning og tími
Hús Fagfélaganna-Herðubreið, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík

3. september 2026 kl: 12:00 - 13:00

Sigurjón Ólafsson aðjúnkt í vefmiðlun við Háskóla Íslands og eigandi ráðgjafastofunnar Funksjón deilir reynslu sinni í röð hádegisfyrirlestra um vefmál sem á erindi við alla þá sem starfa við stafræna grafíska miðlun og hönnun.

Fyrirlesarar
Sigurjón Ólafsson
Sigurjón Ólafsson