Fréttir
05. október 2017

Eru róbótarnir að taka yfir? Bein útsending

Eru róbótarnir að taka yfir? Bein útsending

Þann 12. október nk. fjöllum við um róbóta undir yfirskriftinni „Eru róbótarnir að taka yfir"? Fundurinn er frá kl. 8.30 - 10.00 í húsnæði IÐUNNAR að Vatnagörðum 20. Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Meiriháttar tækniframfarir eiga sér nú stað sem munu hafa áhrif öll störf í náinni framtíð. Starfshættir breytast og þjóðfélagið með. Tækifærin sem felast í þessum tækniframförum eru óteljandi og mikilvægt að öll fyrirtæki og starfsmenn grípi þau.

Þann 12. október nk. höldum við annan morgunverðarfundinn okkar í fundarröðinni um fjórðu iðnbyltinguna. Viðfangsefnið að þessu sinni eru róbótar og fjöllum við um þá undir yfirskriftinni „Eru róbótarnir að taka yfir?" Fundurinn er frá kl. 8.30 - 10.00 í húsnæði IÐUNNAR að Vatnagörðum 20. Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Smelltu hér til að sjá beina útsendingu af fundinum

Fleiri fréttir