Fréttir
19. mars 2020

Lán til sérnáms á framhaldsskólastigi

Lán til sérnáms á framhaldsskólastigi

LÍN veitir í vissum tilvikum lán til sérnáms á framhaldsskólastigi.

Lánshæft sérnám á Íslandi er löggilt iðnnám og annað a.m.k. eins árs starfsnám á framhaldsskólastigi sem hlotið hefur staðfestingu ráðherra samkvæmt lögum nr. 92/2008 og uppfyllir að auki öll eftirtalin skilyrði:

  • að námið hafi fengið jákvæða umsögn af viðkomandi starfsgreinaráði, • að námið sé ekki launað samkvæmt kjarasamningi umfram grunnframfærslu námslána á Íslandi, sbr. gr. 3.1.1 og 3.2,
  • að námslok séu á þriðja hæfnisstigi,
  • að sambærilegt nám sé almennt ekki í boði á háskólastigi á Íslandi.

Farið er með nemalaun eins og aðrar tekjur samkvæmt reglum sjóðsins og koma þau til skerðingar á námsláni.

Almennt nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða sambærilegs prófs er ekki lánshæft. Hins vegar geta framhaldsskólanemar átt rétt á jöfnunarstyrk ef þeir stunda nám fjarri heimahögum.

Fleiri fréttir