Þrír urðu Íslandsmeistarar í matreiðslu- og framreiðslugreinum um helgina
Andrés Björgvinsson varð Íslandsmeistari í matreiðslu, Daníel Árni Sverrisson í framreiðslu og Ásbjörn Geirsson í kjötiðn. Iðan fræðslusetur óskar sigurvegurum innilega til hamingju og þakkar öllum keppendum fyrir magnaða frammistöðu.

Íslandsmót nema- og ungsveina í veitingagreinum fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi sl.laugardag. Keppnin er afar mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk í matreiðslu- og framreiðslugreinum þar sem reynir á fagmennsku, nákvæmni, skapandi eiginleika og seiglu. Dómarar höfðu á orði að sjaldan hefði valið verið jafn erfitt og í ár.
Sautján keppendur í matreiðslu
Alls kepptu sautján í matreiðslu og Andrés Björgvinsson stóð uppi sem Íslandsmeistari. Nemar ársins voru Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir og Sindri Hrafn Rúnarsson. Í forrétt unnu keppendur með rauðsprettu, íslenskar rækjur og grænan aspas og í aðalrétt var verkefnið að elda grísalund og grísasíðu, jarðskokka og dökka soðsósu. Í matreiðslu var Jakob Hörður Magnússon yfirdómari og smakk dómari. Smakkdómarar voru Ólöf Jakobsdóttir og Hallgrímur Friðrik Sigurðarson og eldhúsdómarar þeir Rafn Heiðar Ingólfsson og Kjartan Marínó Kjartansson.
Viðamikil og spennandi keppni í framreiðslu
Fimm kepptu í framreiðslu og stóð Daníel Árni Sverrisson uppi sem Íslandsmeistari í greininni. Nemar ársins voru Tristan Tómasson og Silvía Louise Einarsdóttir. Verkefnin voru viðamikil og hefðbundin að vanda. Nemar drógu um tvo kokteila, spreyttu sig á vínpörun, dekkuðu fyrir fjögurra rétta kvöldverð, unnu blómaskreytingu, gerðu tíu mismunandi servíettubrot, greindu 10 mismunandi glös af styrktum vínum og umhelltu víni. Þá þurftu keppendur að sýna fram á færni á fyrirskurði og diska upp fyrir framan dómara. Auk þess að sýna ávaxtaskurð og eldsteikingu. Dómarar voru Sigurður Borgar Ólafsson og Axel Árni Herbertsson.
Vandað til verka í kjötiðn
Keppendur í kjötiðn vönduðu til verka og fengu gæðahráefni í hendur. Tveir kepptu í kjötiðn og varð Ásbjörn Geirsson Íslandsmeistari og nemi ársins var Friðrik Björn Friðriksson. Verkefnin fólu í sér að verka lambalæri, lambahrygg, ½ frampart, 1 stk. grísaframpart, 1 stk. nautamjöðm, 1 stk. nautaframhrygg og 1 stk. Kjúkling sem keppendur áttu að vinna eftir eigin hugmyndum. Dómarar í kjötiðn voru Stefán Einar Jónsson og Jóhannes Númason.
Takk fyrir stuðninginn
Styrktaraðilar keppninnar fá sérstakar þakkir enda nutu keppendur þess að fá gæðahráefni og góðan aðbúnað frá Esju, Gæðafæði, Bakko Verslunartækni, Ekrunni, Expert og Hafinu Fiskverslun. Sérstakar þakkir fá einnig Icelandair og Hótel- og matvælaskólinn, SAF og Matvís. Umgjörð og skipulagning keppninnar var í höndum Magnúsar Arnar Friðrikssonar hjá Matvís og Péturs Arnar Péturssonar frá Iðunni.