Löggilding mannvirkjahönnuða

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar HMS  til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 eru haldin hjá Iðunni fræðslusetri tvisvar á ári, í mars og október.

Löggilding mannvirkjahönnuða

Námskeiðin eru netnámskeið og standa í tæpar þrjár vikur.  Umfjöllunarefni eru ákvæði laga og reglugerða sem varða starf mannvirkjahönnuða.  Heildarlengd fyrirlestra eru rúmar 20 klst. og geta þátttakendur  horft á þá þegar þeim hentar í þeirri röð sem þeir kjósa sjálfir.  Í kennslukerfinu má einnig nálgast fleiri gögn sem varða umfjöllunarefni námskeiðsins.   Námskeiðið endar með prófi sem fram fer á netinu á síðasta degi námskeiðsins.  Prófið er krossapróf og stendur í 4 klst.

Námskeiðsgjald er 118.900.- kr.

Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á heimasíðu HMS , hms.is

Umsækjendur sækja um rafrænt inn á “hms.is “ ”mínar siður”, ”öryggi mannvirkja”, ”umsóknir” , ” almennt” og  “umsókn á löggildingarnámskeið hönnuða”.