Vandað til verka

Vandað til verka er tíu þátta hlaðvarpssería og fjallar um byggingariðnaðinn, fagmennsku og fólkið sem býr yfir þekkingunni og reynslunni í greininni.

Vandað til verka_Cover

Bergþór Ingi Sigurðsson stýrir þáttunum og ræðir þar við fjölbreyttan hóp fólks úr bygginga- og mannvirkjageiranum um verkefni, þróun og það sem skiptir máli í faginu. 
Þáttunum var fagnað með útgáfuboði í liðinni viku en fyrsti þátturinn þar sem Sylgja Dögg ræðir um myglu í mannvirkjum er kominn á helstu veitur og er aðgengilegur hér að neðan.