Erasmus+
Hvað er Erasmus+
Iðnnemar, nýsveinar, leiðbeinendur og nefndarfólk hjá Iðunni eiga þess kost að sækja um Erasmus+ styrk til námsdvalar í öðru Evrópulandi. Iðan tekur þátt í fjölmörgun alþjóðlegum verkefnum og er Erasmus+ eitt af þeim. Markmiðið með námsdvöl í öðru landi er að kynnast betur sínu fagi í alþjóðlegu samhengi og veita innsýn í líf og störf fólks í útlöndum.
Erasmus+ fyrir iðnnema
Öll lönd í Evrópu koma til greina en tengslanet Iðunnar er misjafnt eftir löndum. Vinsæl lönd hafa t.d. verið Þýskaland, Frakkland, Austurríki, Eistland, Finnland og Danmörk.
Erasmus+ fyrir nýsveina
Nýsveinar geta sótt um styrk og miðað er við að dvölin sé innan árs frá sveinsprófi.
Erasmus+ fyrir starfsfólk
Starfsspeglun (job shadowing), gestakennsla í stofnunum og fyrirtækjum, fagtengd námskeið og þjálfun og þátttaka starfsfólks í nemakeppnum.