Sveinspróf í bílgreinum
Athugið að ekki er tekið við umsóknum í sveinspróf eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Ef upp koma vandamál við skráningu má senda tölvupóst á [email protected] með skráningu. Í tölvupósti þarf að koma fram iðngrein, nafn og kennitala próftaka og netfang. Einnig þarf að koma fram kennitala, nafn og netfang hjá meistara og fyrirtæki.
Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?
- Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók
- Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi og útskrifast fyrir töku sveinsprófs.
Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?
Samkvæmt reglugerð um sveinspróf er nauðsynlegt að skila inn eftirfarandi gögnum:
- Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið.
- Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn og fyrir töku sveinsprófs.
- Staðfestingu meistara á umsókn í sveinspróf
Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?
- Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.
Sveinspróf í bifreiðasmíði
Næsta sveinspróf í bifreiðasmíði verður haldið í maí/júní 2027.
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í bílamálun
Næsta sveinspróf í bílamálun verður haldið í maí/júní 2027.
Sveinsprófsnefnd:
Sveinspróf í bifvélavirkjun
Sveinspróf í bifvélavirkjun verður haldið í 8. - 10. október 2026. Próftökum verður raðað niður á prófdagana og fá tölvupóst þegar það liggur fyrir.
Sveinsprófsnefnd:
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í bíliðngreinum veitir Sylvía Björk Ólafsdóttir í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á sylvia(hjá)idan.is.