Listin að gera jólakokteil
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Fyrir alla sem hafa áhuga á kokteilagerð – jafnt byrjendur sem vilja læra grunnatriðin sem og þá sem hafa einhverja reynslu og vilja skerpa á tækni sinni og framsetningu drykkja.
Markmið:
Að kenna þátttakendum grunnatriði í kokteilagerð, bæði fræðilega og verklega, og byggja upp sjálfstraust til að blanda, hrista og skreyta drykki á faglegan og skapandi hátt
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnatriði í uppbyggingu kokteila (hlutföll, bragðjafnvægi og blöndunartækni)
- Notkun baráhalda og uppsetningu kokteilastöðvar
- Val á hráefnum, ís, glösum og skrauti
- Þrjár jólalegar útfærslur á vinsælum klassískum kokteilum
- Framsetningu, útlit og faglegt viðmót við drykkjagerð
Að loknu námskeiði á nemandi að:
Getað hrist saman kokteila fyrir vini og vandamenn og heillað liðið upp úr skónum, í bústaðnum, matarboðum eða hvaða veislu sem er!
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Teitur Riddermann Schiöth er forseti Barþjónaklúbbs Íslands og er þekktur barþjónn innan veitingasenu Reykjavíkur. Hann hefur í yfir áratug byggt upp þekkingu og reynslu í bar geiranum bæði innanlands og erlendis. Teitur hefur stýrt fjölmörgum viðburðum, keppnum og fræðsluverkefnum fyrir barþjóna og er í dag leiðandi afl í barmennsku á Íslandi. Hann hefur sjálfur keppt í fjölda kokteilakeppna og unnið til fjölmargra verðlauna.