Grjóthleðsla

Í samstarfi við Fornverk í Höfnum
Staðsetning
Hafnir á Suðurnesjum, Hafnir, 233 Reykjanesbæ
14. ágúst 2026 kl: 09:00 - 15:00
15. ágúst 2026 kl: 09:00 - 15:00
16. ágúst 2026 kl: 09:00 - 15:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Verð 55.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 14.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Grjóthleðsla
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að byggja úr grjóti og beita þeirri þekkingu við nýjar hleðslur, endurreisn og viðhald hlaðinna veggja og tófta.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að byggja úr grjóti. Hvort sem um ræðir veggi eða önnur smærri mannvirki.

Markmið:

Að kenna þátttakendum aðferðir við grjóthleðslu og beita þeirri þekkingu við endurreisn og viðhald hlaðinna veggja og tófta.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hefðbundnar íslenskar hleðsluaðferðir
  • Áherslu á nákvæm vinnubrögð.
  • Uppbyggingu hleðslna.
  • Verkþekkingu sem hefur þróast í íslensku samfélagi í gegnum aldir.
  • Efnisval, burðarvirki og samhengi við landslagið
  • Að lesa í grjót, landslag og sögulegt samhengi mannvirkja

Að loknu námskeiði á nemandi að:

Þekkja hefðbundnar aðferðir við gróthleðslu og kunna að beita þeim.

Kunn að velja efni í grjóthleðslur í samræmi við umhverfið.

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er haldið af Fornverkum í Höfnum. Öll tæki og tól verða til staðar á svæðinu ásamt kaffaðstöðu. Þátttakendur mæta í vinnufatnaði í samræmi við veður. Boðið verður upp á hressingu yfir alla námskeiðis dagana.

Hafnir eru aldagamalt landnámssvæði sem hefur að geyma margar merkar minjar. Hluti af þessum minjum er gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag.

Með þátttöku kennarans, Kristínar Auðar í Fornverki í Höfnum er tryggt að endurhlaðin mannvirki séu unnin í samræmi við fagleg og söguleg viðmið og að verkkunnátta í íslenskri grjóthleðslu sé miðluð áfram á vandaðan og ábyrgðan hátt.

Í lok hvers námskeiðs munu þátttakendur fá útskriftarplagg ásamt mynd af hópnum og þeirri hleðslu sem tókst að endurreisa.

Verð 55.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 14.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Hafnir á Suðurnesjum, Hafnir, 233 Reykjanesbæ
14. ágúst 2026 kl: 09:00 - 15:00
15. ágúst 2026 kl: 09:00 - 15:00
16. ágúst 2026 kl: 09:00 - 15:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennari
Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir
Hleðslusérfræðingur og skrúðgarðyrkjumeistari

Kristín hefur víðtæka reynslu af endurhleðslu og varðveislu grjóthleðslumannvirkja víðs vegar um landið. Hún vinnur markvisst með hefðbundnar íslenskar hleðsluaðferðir þar sem efnisval, burðarvirki og samhengi við landslagið eru í forgrunni.