Grindarsmíði

Í samstarfi við Fornverk í Höfnum
Verð fyrir félagsmenn
9.000 kr.
Verð
55.000 kr.
Grindarsmíði
Námskeið sem byggir á verklegri vinnu þar sem þátttakendur kynnast fornum aðferðum við grindarsmíði, læra að lesa í efni og form og beita þeirri þekkingu við endurgerð grindarvirkja í sögulegum mannvirkjum.

Fyrir hverja:

Þetta er ætlað öllum þeim sem vilja kynnast fornum aðferðum við grindarsmíði, læra að lesa í efni og form og beita þeirri þekkingu við endurgerð grindarvirkja í sögulegum mannvirkjum.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að fræða þátttakendur um fornar aðferðir og kenna þeim að beita þeim við smíðar

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Handsmíðaðar burðargrindur og byggingartækni sem þróast hefur í íslensku samhengi um aldir.
  • Húsgrindur sem eru bæði sterkar og eru í sátt við umhverfi sitt.
  • Burðarvirki og samspil timburs, steins og landslags.
  • Hefðbundið efnisval og tengingar í grindum.
  • Verklag og verkkunnáttu við grindarsmíði.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Kunna að smíða einfaldar grindur.
  • Þekkja hefðir og handverk við grindasmíði.

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er haldið af Fornverkum í Höfnum. Öll tæki og tól verða til staðar á svæðinu ásamt kaffaðstöðu. Þátttakendur mæta í vinnufatnaði í samræmi við veður. Boðið verður upp á hressingu yfir alla námskeiðis dagana.

Hafnir eru aldagamalt landnámssvæði sem hefur að geyma margar merkar minjar. Hluti af þessum minjum er gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag.

Með þátttöku Snædísar í Fornverki í Höfnum er tryggt að endurgerð burðargrinda í verbúðum og öðrum mannvirkjum sé unnin af fagmennsku og virðingu fyrir sögulegu samhengi, jafnframt því sem dýrmæt verkkunnátta í fornum timburverkum er miðluð áfram til nýrra kynslóða. Í lok hvers námskeiðs munu þátttakendur fá útskriftarplagg ásamt mynd af hópnum og þeirri grind sem tókst að endurreisa.

Staðsetning
Hafnir á Suðurnesjum, Hafnir, 233 Reykjanesbæ

3. júlí 2026 kl: 09:00 - 15:00
4. júlí 2026 kl: 09:00 - 15:00
5. júlí 2026 kl: 09:00 - 15:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Snædís Traustadóttir
Kennari
Snædís Traustadóttir
húsasmíðameistari og nemi í hefðbundnu byggingarhandverki við NTNU

Snædís hefur um margra ára skeið unnið við verkefni tengd viðhaldi og viðgerðum eldri húsum.