Þjónustunámskeið – Grunnur
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Óreynt eða nýtt þjónustufólk í veitinga- og þjónustugeiranum.
Markmið:
Að skilja muninn á afgreiðslu og þjónustu og byggja sameiginlegan grunn fyrir faglega þjónustustarfsemi.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnþætti góðrar þjónustu
- Sameiginleg vinnubrögð og gildi
- Hagnýt atriði um framkomu, ásýnd og flæði þjónustunnar
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Skilja tilgang og gildi virkrar sölu
- Undirbúa sig faglega fyrir þjónustu
- Bjóða upp á skipulagða og markvissa þjónustu við hópa
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Stefán Ingi hefur starfað sem þjónn síðan 1986 þegar hann hóf störf sem barþjónn á Hótel Borg. 1991 útskrifaðist Stefán sem framreiðslusveinn frá Hótel Óðinsvéum og tók svo nokkrum árum seinna við sem veitingastjóri yfir bæði Óðinsvéum og Viðeyjarstofu. 2012 var meistaranámi lokið við MK og útskrifaðist Stefán með ágætiseinkunn þaðan. 2020 var förinni síðan heitið í Háskóla Íslands þaðan sem Stefán útskrifaðist með kennsluréttindi Iðnmeistara árið 2021. Á sínum langa ferli sem framreiðslumaður hefur Stefán komið víða við og kynnst mörgum framúrskarandi fagmönnum jafnt matreiðslumönnum sem og framreiðslumönnum. Á seinni árum hefur Stefán æ meira reynt að tvinna saman þjónustu og jákvæða sölumennsku ásamt því að leiðbeina þjónum framtíðarinnar um þá jákvæðu upplifun sem góð þjónusta getur skilið eftir sig í minningu veitingahúsagesta.