Námskeiðið er ætlað matgæðingum, heimakokkum og öllum sem hafa áhuga á góðu hráefni og vandaðri matargerð.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu og færni til að útbúa pylsur frá grunni heima hjá sér.
Farið er yfir rétta meðhöndlun hráefnis.
Áhersla er á verklega vinnu og að þátttakendur fari heim með þekkingu sem nýtist strax í eigin eldhúsi.
Hermann er kjötiðnaðarmaður og starfar sem slíkur hjá Síld og Fisk. Hermann er fyrirliði Landsliðs Kjötiðnaðarmanna. Hann er þrefaldur sigurvegari í "Grillpylsu ársins á Kótilettunni 2022, 2024 og 2025.