Þetta námskeið er fyrir þau sem ætla sér að öðlast starfsleyfi byggingarstjóra skv. grein 4.7.3 í byggingarreglugerð.
Markmið þess er að upplýsa þátttakendur um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Námskeiðinu lýkur með próf sem þátttakendur taka á netinu.
Ásta er sérfræðingur í skipulags- og byggingarmálum og stjórnsýslu mannvirkjamála; byggingarreglugerð, stjórnsýslukærum, ábyrgð aðila í mannvirkjagerð, ferli byggingarleyfisumsókna, þvingunarúrræðum byggingarfulltrúa, eftirliti, byggingarvörum, gæðastjórnunarkerfum o.fl.
Þórhallur er blikksmiður, iðnrekstrarfræðingur og iðnaðartæknifræðingur. Hann starfaði við sölu á stáli, málmum og byggingarvörum í 30 ár. Í dag starfar hann við markaðseftirlit með byggingarvörum hjá HMS.
Jón Freyr er með meistarapróf í stjórnun og rekstri, kennsluréttindi og hefur víðtæka reynslu af gæða- og öryggisstjórnun, verkefnastjórnun, rekstri og innleiðingu gæðakerfa.
Hann er sérfræðingur í gæðastýringu, öryggismálum og umbótastarfi, með yfirgripsmikla stjórnunarreynslu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og verktaka- og ráðgjafarfyrirtækjum. Hann hefur leitt innleiðingu og uppbyggingu vottaðra gæðakerfa samkvæmt ISO 9001, ISO 45001 og ISO 27001 staðlinum og stýrt umbótaverkefnum með skýra áherslu á árangur og öryggi.