Áhættugreiningar í bygginga- og mannvirkjagerð
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hvern:
Námskeiðið er ætlað starfsfólki fyrirtækja í byggingariðnaði sem þarf að gera áhættugreiningar fyrir störf sem unnin eru innan fyrirtækisins.
Markmið:
Að þátttakendur verði færir um að gera áhættugreiningar fyrir störf í bygginga- og mannvirkjagerð hvort sem um er að ræða störf á byggingarstað eða annars staðar.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Kröfur til fyrirtækja um gerð áhættugreininga fyrir störf í bygginga-og mannvirkjagerð.
- Gerð verkferla og uppsetning þeirra.
- Form til að gera áhættugreiningar og munu þáttakendur vinna með slíkt form.
- Gerð fullbúninnar áhættugreiningar sem nýtist við rekstur öryggismála og verklegar framkvæmdir.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja þær kröfur senm gerðar eru varðandi áhættugreiningu fyrirtækja í bygginga-og mannvirkjagerð
- Kunna að gera verkferil fyrir áhættugreiningu á tilskildu formi.
- Geta unnið áhættugreiningu sem nýtist við rekstur öryggismála og verklegar framkvæmdir.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Eyjólfur er byggingatæknifræðingur frá Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.