Blágrænar ofanvatnslausnir
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað verktökum, verkstjórum og öðrum sem koma að uppbyggingu og framkvæmd mannvirkja og útisvæða þar sem gera þarf ráð fyrir meðferð ofanvatns á öruggan og sjálfbæran hátt.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að fræða þátttakendur um blágrænar ofanvatnslausnir og hlutverk þeirra á byggðum svæðum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hönnun blágrænna ofanvatnslausna og hvernig þær virka í raun.
- Mótun lands og yfirborðs til að stýra rennsli og draga úr álagi á fráveitukerfi.
- Helstu útfærslur, efnisval og framkvæmdaratriði sem skipta máli fyrir endingargóða lausn.
- Algeng mistök og hvað þarf að hafa í huga til að lausnir haldi virkni og útliti til lengri tíma.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Kunna að lesa og skilja helstu forsendur í hönnunargögnum og teikningum tengdum ofanvatnslausnum.
- Geta framkvæmt blágrænar ofanvatnslausnir samkvæmt hönnunargögnum og tryggt réttan frágang á verkstað.
- Þekkja lykilatriði í mótun, frágangi og viðhaldi sem tryggja að lausnir virki til lengri tíma.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er bóklegt og byggir á dæmum og útfærslum sem tengjast íslenskum aðstæðum og framkvæmdum.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Landslagsarkitekt hjá Urban Beat Design