Gæðastjórnun í byggingariðnaði

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
28. október 2026 kl: 13:00 - 17:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Gæðastjórnun í byggingariðnaði
Námskeið sem ætlað er iðnmeisturum og minni fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar og/eða einyrkjar í bygginga- og mannvirkjagerð.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er ætlað minni fyrirtækjum og iðnmeisturum sem starfa sem undirverktakar og/eða einyrkjar í bygginga- og mannvirkjagerð.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði og kröfur til gæðakerfa skv mannvirkjalögum og byggingarreglugerð og að þátttakendur öðlist skilning á þeim.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Kröfur til gæðakerfa í lögum og reglugerðum.
  • Gerð og uppsetingu á einföldu gæðakerfi.
  • Kröfur í virkniskoðun gæðakerfa.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Hafa skilning á grunnatriðum gæðakerfa.
  • Vera kominn með grunn að eigin gæðakerfi.
  • Hafa þekkingu til að geta klárað gæðakerfi sitt sjálfur.

Annað:

Á námskeiðinu munu þátttakendur vinna verkefni samhliða kennslunni, þ.e. að að vinna í gæðakerfi eða setja upp sitt eigið. Þátttakendur þurfa því að vera með eigin tölvu.

Þegar kemur að gæðakerfum er engin ein leið rétt, einfaldleiki er lykilatriði og að það virki fyrir þig og þína starfssemi. Í umhverfi sívaxandi opinberra krafa er gott og einfalt gæðakerfi farið að skipta sífellt meira máli.

Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
28. október 2026 kl: 13:00 - 17:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Sigrún Melax
Kennari
Sigrún Melax
Gæða- og öryggisstjóri

Sigrún Melax er verkfræðingur sem unnið hefur við gæðastjórnun um árabil. Hún hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum hliðum gæðastjórnunar, svo sem uppsetningu, innleiðingu og rekstri gæðakerfa og virkniskoðunum.